13september
15júlí
Gautaborg
Þá er ég aftur flutt...fimmta íbúðin mín í Svíþjóð á bara tveimur og hálfu ári. Ekki allir sem geta stært sig af því! Gautaborg er það í þetta skiptið, eða réttara sagt Kållered sem er úthverfi fyrir sunnan Gautaborg. Íbúðin er hin fínasta, tveggja herbergja og rúmlega 60 fermetrar, nýslípað parket og fersk veggfóður sem við fengum sjálf að velja! Þar að auki státum við af suðursvölum sem snúa að "naturreservati" (skógi) sem er náttúrulega algjör lúxus!!Ég er að vinna hérna í Kållered í sumar í heimaþjónustunni sem hefur miðstöðvar hérna í næsta húsi, mjög þægilegt. Í hópnum sem ég vinn í er mikið af ungu fólki sem er mjög skemmtilegt upp til hópa og gamla fólkið er allt mjög vingjarnlegt, svo að ég er bara að fíla mig mjög vel í vinnunni. Tryggve er líka byrjaður að vinna í kjarnorkuverinu Ringhals og líkar bara vel. Hann vinnur vaktavinnu bæði morgun-, kvöld- og næturvaktir. Hingað til hefur það bara gengið vel, ekkert mál að snúa við sólarhringnum oft og mikið fyrir hann virðist vera..(ég gæti þetta aldrei..:-)
Við fórum í 10 daga ferð á fornar slóðir í frönsku Ölpunum í júní. Við gistum hjá AFS-fjölskyldunni minni í Copponex. Dögunum eyddum við svo við fjallgöngur, og borgarferðir til Annecy og Genfar. EM var á fullu svo að við fórum í "fan-zone-ið" í Genf og sáum Svíþjóð tapa súrt fyrir Spáni á risaskjá, umkringd spánverjum í rauðgulum stríðsklæðum! (giska á að hlutfallið svíar-spánverjar meðal áhorfenda hafi verið ca. 5%-95%). Annað skemmtilegt sem við komum í verk var að taka kláfinn upp á Aguille du midi sem fer upp í 3842m hvorki meira né minna. Það var glampandi sól og þ.a.l. var útsýnið frábært yfir Mont Blanc og önnur fjöll í kring. (fór þarna líka á interrailinu '05, en þá í þoku svo við sáum ekki neitt..lítið útsýni fyrir peningana í þeirri ferð!). Í Annecy var "festival du film d'animation" í fullum gangi, svo við fórum og sáum nokkra tónleika og teiknimynd á risatjaldi úti í "le pâqiuer" garðinum. Og ekki má gleyma æðislega matnum sem við fengum hjá Perretunum, m.a. ekta svissneskt raclette sem bragðaðist mjööög vel eftir að hafa eytt deginum í fjallgöngu.
Við erum svona smám saman að kynnast Gautaborg. Við kíktum á nokkrar strendur í hitabylgjunni sem var um daginn og svo erum við búin að rölta um dýragarðinn í Slottskogen og "tjuvtitta" á Lars Winnerbäck tónleika :). Stefnan er tekin á að "upptäcka" borgina eins mikið og hægt er nú í sumar áður en allt verður grátt og dimmt.
Heimkoma okkar Tryggve er síðan áætluð þann 20/8. Við ætlum að vera heima í heila 10 daga áður en við fljúgum tilbaka til að ná skólastartinu, það er ekki bara ég sem er að setjast á skólabekk, Tryggve er búin að skrá sig í íslensku 1 sem hann ætlar að mæta í þegar hann getur vegna vinnu!
Stefni á að setja inn nokkrar myndir héðan sem fyrst, svo endilega kíkja á myndasíðuna!
24febrúar
voriđ komiđ
Meðalhitinn er búinn að vera yfir frostmarki í Linköping í heila sjö daga: Fyrsti dagur vorsins í dag skv. SMHI (veðurstofan). Að þessu tilefni ætla ég að blooooogga. Síðan síðasta örblogg um Åre (mydir eru betri en mörg orð) er ég búin að:-Ákveða að flytja til Gautaborgar í byrjun júní! (Tryggve er að sækja um vinnu þar)
-Taka lestina niður til Lundar, kaupa Saab '98 módel af ömmu Tryggve og heimsækja fuullt af gömlum frænkum, keyra síðan Borsthult (the Folkeson town) og hitta fullt af áður óþekktum Folkesonum (frændsystkinum). Keyra til Gautaborgar og gista hjá einum af áður óþekktu Folkesonunum, "kika runt" í Gbrg og tala við mjög yndælan námsráðgjafa í háskólanum. Ekkert mál að meta yfir kúrsa. Ég byrja á að klára BAinn í heimspeki og síðan hoppa ég inn á matteprogrammet, 4. önn eftir jól.
-Lenda í því að fá afturrúðuna brotna á glænýja bílnum á leiðinni heim til Linköping þegar við pulsustoppuðum á Statoil. Ónýt rúða og horfin fartölva!
-Lesa philosophy of logics
-Fá Erik í heimsókn og fara til Osqvik að hitta íslendingana í Stokkhólmi. Sauna, grill, Freyr á gítar...
-Rispaður bíll þegar við komum heim, "bílastæðarispa" að öllum líkindum.
-Byrja Afródanskúrsinn...pínu súr yfir að það var hætt við framhaldskúrsinn sem ég skráði mig í, en byrjendakúrsinn er líka alveg kúl.
-Fara í atvinnuviðtal í Stokkhólmi...á ensku. Það kom mér á óvart hversu feitt ég sukka í ensku. Ekki nógu gott.
Jamm. Ekki góð byrjun hjá okkur sem bílaeigendum. 7-9-13 að við verðum heppnari í framtíðinni. Annars gengur lífið sinn (ljúfa) gang. Ég er búin að fatta hve mikill lúxus það er að hafa rydsskogen hér alveg rétt hjá og er að taka mig á í skokkinu...ekki víst að það verði svona stutt í náttúruna í Gautaborg.
Ég er líka alveg ofboðslega lítið í skólanum núna, heimspeki 2svar í viku og stæ einu sinni í viku svo ég er að reyna mitt besta að bæta sjálfsagann (gengur ekki allt of vel..). Líka nokkur endurtektarpróf sem nálgast æ hraðar sem þarf að læra fyrir (úff).
Svo er það Melodifestivalen sem tröllríður öllu hérna. Það var undankeppni hér í linköping í gær og við Tryggve hjóluðum að sjálfsögðu niður í bæ til að sjá stjörnurnar syngja á Stóra Torginu. Við misstum því miður av Caracola (stelpusveit, typ Nylon), en við sáum Velvet syngja stórslagarann Deja vu. Þvílík eðalmúsík! Sáum líka svona "lokal lilla melodifestivalen" ss. smákrakkar að syngja schlager. Einn ca 12 ára sem söng CaraCara mia með mikilli innlifun... mjög fyndið. Um kvöldið horfðum við svo á endinn á keppninni hjá Önnu sem var með innflutningspartý.
Nú ætla ég að fara að einbeita mér að harðsperrunum sem ég varð mér út um í Rydsskogen í gær...
Bara svona til gamans: Hús, eins og okkar í Ryd (þau líta öll út svona) nema okkar er með rautt í staðinn fyrir brúnt.
Held alveg örugglega að þetta sé eins bíll og okkar:

26janúar
Ĺre
Kom heim frá Åre í gær. Geeeegt veður, færi og stuð. Myndir á myndasíðunni.11nóvember
heimsóknir ofl
Þá er gestagangurinn yfir þessa önnina
Helga systir kom í heimsókn núna um mánaðarmótin og var í heila 11 daga. Ekki nóg með það, Sigrún kom frá Köben og var eina helgi hérna líka...rosa stuð. Ég tók túristasnúninginn á Linköping þó að það sé nú ekki mikið að gera hérna annað en að labba um í bænum og kíkja á gamla linköping... Við Helga kíktum líka á Norrköping og fórum svo í dagsferð til Stokkhólms þar sem vissir slepptu sér meira en þeir eru vanir í tískubúllum Stokkhólmsborgar ;) Ekki má gleyma stúdentadjamminu sem Helga fékk prófskírteini í við brottför. Flamman fyrst, svo Herrgårn með Sigrúnu og síðast kravall í kårallen (fyrir þá sem ekki vita er kravall partý þar sem allir klæðast búningi/samfestingi sinnar deildar...mjög sérstakt). Kíktum líka á hokkýleik, LHC vs Färjestad, hörkuspennandi leikur og Malmö-Linköping í kvk-fótbolta sáum við líka, Dóra Stefáns var að spila svo eiginlega skylda að mæta og heilsa upp á hana :) ....og heldur ekki má gleyma afródanshelgarkúrsinum sem við kíktum á daginn áður en Helga flaug heim. Mér tókst í hita leiksins (ath 5 trommarar trommuðu undir dansinn) að rífa rassinn af thaibuxunum mínum, áttum að beygja okkur eitthvað niður í lok kóreógrafíunnar og ég veit ekki af fyrr en ég heyri að ég ríf buxurnar, otandi rassinum í átt að trommurunum
Sem betur fer var ég á hjóli svo ég komst heim án vandræða, hefði ekki viljað fara í strætó með þetta riiisa gat á rassinum...Skólinn er biiissí núna, enda er ég í aðeins of mörgum einingum. Globaliseringskursen er farinn að fara í taugarnar á mér, soldið langdregið eitthvað, finnst að við séum búin að diskútera globaliseringu alveg í gegn á seminariunum. Stærðfræðin er mun meriri vinna þetta períod en það fyrra, komplexu analysinni að þakka. En það er bara gaman. Ég er líka búin að sækja um kúrsa fyrir næstu önn, fer í heimspeki 2 (hlakka ekkert smá til, tilbreyting frá stæ) og stokastiska processer för finansmarknadsmodeller sem ég hlakka líka mjög mikið til í að fara í.
Annars var ég núna rétt áðan í kaffi hjá Íslenskum hjónum sem búa hérna hinum meginn við götuna! Sonur þeirra heyrði okkur Sigrúnu og Helgu tala íslensku þegar við vorum að versla í matin í Hemköp og byrjaði að tala við okkur, þetta er voða fínt fólk, 5 krakkar og fullt af dýrum, svo mikið líf þar á bæ!
Á döfinni í nóvember er Helsinki kryssning með Best Uppsala, Múm tónleikar í Sthlmi með Völu og örugglega margt fleira óvænt og skemmtilegt. Miðar til Åre í janúar eru líka komnir í hús (jippíí), get ekki beðið eftir að komast á bretti!
Svo er kominn snjóóór í Linköping
02október
myndir komnar
híhí..gott að hafa einhvern sem pískar mann áfram í bloggeríinu. Ég er búin að bæta við barasta þónokkrum slatta af myndum inn á myndasíðuna, endilega kíkja á þær!01október
äntligen blogg....
Get ekki svikið Bínu um blogg svo hér kemur eitt..September er búinn að vera mjöög svo skemmtilegur hjá mér. Skólinn er svona frekar rólegur fyrripart annarinnar allavega þannig að ég notaði tækifærið og skellti mér til Parísar og Lille með Tryggve...og til London með Rósu og Völu :D
Ég og Tryggve vorum búin að ákveða að fara til Lille/París í tilefni að ársafmæli okkar í lok okt, en þegar við rákumst inn á útsölu á ryanair.com og fengum miðana fyrir 2 sek ef við færum í sept ákváðum við nú bara að grípa gæsina. Þetta var voða notaleg ferð. Við hittum Önnu vinkonu Tryggva í Lille, en hún flutti þangað daginn áður en við komum, ætlar að vera erasmusnemi í eitt ár. Í París röltum við mest um og horfðum á fólkið. Hittum líka Blíðu frænku sem var nýflutt þangað út af praktík og líka Birtu frænku sem var þar í skemmtiferð með vinkonu sinni.
London var síðan um þarseinustu helgi. Við fengum þennan líka fína díl á herbergi í plaza sherlock holmes hótelinu á baker street. Við náðum að gera alveg ótrúlega margt þessa 3 daga sem við vorum í stórborginni, oxfordstreet verslunarleiðangur fyrsta daginn svo út með hópi af krökkum sem voru með Einari, kærasta Rósu í þjálfun hjá RBS. Portobello road 2. daginn og aftur út með bankakrökkunum, í þetta skipti á lúúxus stað sem heitir roof garden...ekkert smá fansý :) og svo túristaleiðangur í Westminister abbey og Buckingham palace á sunnudeginum....og sólin skein á okkur svo til allan tímann, ótrúlega vel heppnuð ferð!
Amma og afi komu svo í heimsókn núna á fimmtudaginn og voru eina nótt. Mjög gaman að fá þau í heimsókn og kúlusúkkið sem þau komu með var meira en vel þegið:)
Og um helgina sem var að líða skelltum við Tryggve okkur svo til Stokkhólms í tilefni þess að íslenskir námsmenn í stokkhólmi voru búnir að planera sumarbústaðarpartýferð í Osqvik. Við tókum Erik, vin Tryggva frá Uppsala með okkur. Þetta var rosadjamm, grill, sauna, sjóböð og gítar er ekki slæm blanda ;) Daginn eftir skelltum við okkur svo til Uppsala þar sem við slöppuðum av í sundlauginni í Fyris og borðuðum á Tzatziki. Sunnudagurinn fór í allmennt afslappelsi, gerðum ekkert annað en að hanga heima hjá Erik og glápa á sjónvarp. Mér tókst reyndar að skreppa yfir til Möggu frænku í smá tyrkneskt kaffi, ekki annað hægt þegar maður er í Uppsala.
Að öllum ferðalögum gleymdum gengur lífið bara sitt vanagang. Við erum svona smámsaman að gera íbúðina heimilislega, búin að kaupa gardínur í herbergið mitt og hengja upp fínu plaggötin okkar í stofuni. Svo er píanóið sem er búið að vera í viðgerð í sumar komið heim, ekkert smá flott!!..Ég er í 1. annar kúrsum í stærðfræði núna, að vinna upp það sem þeir hér í LIU vildu ekki meta frá Stokkhólmi svo það er frekar létt, bætti við mig einum svona-til-gamans-kúrsi til að hafa eitthvað að gera, globalisering och samhällsutveckling heitir hann og er bara frekar skemmtilegur þó að það sé alveg óheyrilega mikið af blaðsíðum að lesa fyrir hvern fyrirlestur/seminarium.
Kannski ég skelli svo inn nokkrum myndum þegar ég má vera að því...
04ágúst
verslunarmannahelgi
Þá er ég hætt í sumarvinnunni í Borgun, seinasti dagurinn í gær. Helgin fer í að undirbúa komu Folkesonanna, þau koma á mánudaginn. Þarf að redda aukarúmum, sængum...svo þarf ég að tæma herbergið mitt, en Steinka systir er víst orðin þreytt á að búa í herbergi sem er fullt af mínu drasli. Það er s.s. komið að því að flytja að heiman í alvöru núna, ætla að senda bretti til svíþjóðar og allt! Ég ætla líka að kíkja á innipúkann um helgina milli þess sem að ég pakka :)
29maí
prófalestur
lífið er statistisk teori þessa daganna... gaman.24maí
numero dois
Ritgerðin klöppuð og klár..bara skila á morgun :) Loksins! Næstu vikuna verður svo intensíf statistík-próflærdómur...ég er kannski ekki búin að vera duglegust í heimi að reikna heima þetta period, svo það er mikið að læra :-SAnnars er það að frétta að ég er fallinn fyrir hnetusmjöri..aftur. Þeir sem hafa þekkt mig lengi vita að ég lifði á hnetusmjörssamlokum frá 1. upp í 8. bekk. Ég smurði nefninlega alltaf sjálf nestið í skólann og þar sem ég er frekar löt að eðlisfari og hnetusmjörið auðsmurt í samanburði við t.d. ostasamloku varð það einhvernveginn alltaf ofaná, þangað til að ég fékk algjört ógeð þegar ég komst á gelgjuna. En nú hef ég greinilega þroskast nógu mikið til að læra að meta þetta aftur ;) Ristað polarbröd með hnetusmjöri er einfaldlega málið...Tryggve er sammála mér :D
og Helga..Takk fyrir gnocchi uppskriftina. Salvíu-smjör-gnocchi er alveg að gera góða hluti...erum búin að borð'etta tvisvar síðan ég fékk uppskriftina og keyptum þriðja pokann i Hemköp í dag...mumms!
Já, og svo vorum við í Stenlyckan seinustu helgi (sumarbústaður foreldra Tryggve í Halland). Við náðum að slappa feeeeiiit af, kíkja á Varberg og kaupa ís, Versla smá í Gekås í Ullared og í outlet HM Ullared (það er víst dresscode í sumarvinnunni minni, svo að ég sem á BARA gallabuxur ossoleiðis varð náttúrulega að splæsa á smá skvísuföt til að passa inn í peningaumhverfið í sumarvinnunni!!). Síðast en ekki síst rúntuðum við um í Gautaborg einn dag. SMHI (veðurstofan) hafði spáð rigningu alla uppstigningarhelgina, nema á fimmtudeginum, svo við fórum þá...en viti menn, mígandi rigning allan daginn :( En okkur tókst að skemmta okkur vel þrátt fyrir allt. Fórum í Liseberg, m.a. í nýja trérússíbanan Balder (fjúfff...:S), Lisebergsbanan líka, að sjálfsögðu, og unnum ekkert risatoblerone :(. Kíktum svo á Universeum sem er einskonar vísindasafn og dýragarður og röltuðum svo niðrí bæ í rigningunni og mannleysinu (uppstigningardagur...allt lokað) og hittum Ljúf frænda á kaffihúsi. Toppuðum svo daginn á súpergóðum kínverskum veitingastað sem dyravörður á veitingastað við hliðiná benti okkur á..!!
Vikan hefur svo liðið í miklum rólegheitum..við áttum nokkra lostþætti inni svo sjónvarpsglápið hefur tekið meiri tíma en gott má teljast... Fann líka þessa fínu skokkleið í Rydskóginum hérna við hliðiná. Merktir stígar 2,5 og 5 km og eitthvað meira held ég...virkilega næs að sprikla þar og fríska sig aðeins upp.
thats all folks
/Hjördísan